Shopping security
Íslenska útgáfan
Style KARAVEST er prjónauppskrift.
Uppskriftin er send á netfang sem gefið er upp og í PDF formi sem hægt er að hlaða niður.
Stærðartafla
Stærðir (cm) XS (S) M (L) XL
1. Yfirvídd
89 (93) 97 (101) 105
2. Lengd á bol
49 (50,5) 52 (53,5) 54,5
3. Lengd á rúllukraga
22,5 (23) 23,5 (24) 24
3. Lengd á venjulegu hálsmáli
7,5 (8) 8 (8,5) 8,5
Hæfni : Meðalþekking á prjónskap
Garn og aukahlutir
Organic merino DK frá Thelma Steimann, garnið er 100% vistvæn handlituð merino ull. Meðal lengd ca. 225m/100g í hverri hespu. Dásamlega mjúk ull til að vinna með.
Organic Merino DK: 3/3/3/3/4
Hringprjónar 70 cm í 3,5 mm og 4 mm.
Hringprjón 40 cm í 3,5 mm.
Saumnál og öryggisnálar.
Prjónfesta
Hafið í huga að sannreyna prjónfestu áður en hafist er á verkefninu. Fitjið upp 20 L og prj 29 umf á prj 4 mm fyrir 10 x 10 cm prjónfestu. Ef prjónfestan mælist smærri í cm, skiptið yfir á stærri prjóna.
Ef prjónfestan mælist stærri í cm, skiptið yfir á minni prjóna.
Gott að hafa í huga
Vestið er prjónað frá byrjun á búk og upp að öxlum í hring. Vestið er skipt upp í miðju við handakrika og aftur við hálsmál ,og prjónað fyrir rétt og röngu þar eftir. Stroffið fyrir hálsmáli og handakrikum er prjónað eftir að axlir hafa verið lykkjaðar saman. Hægt er að prjóna fyrir kraga á tvo mismunandi vegu ; rúllukragi eða opið hálsmál, fylgjið leiðbeningum á kraga.
Lesið vel í gegnum uppskriftina áður en hafist er á verkefninu. Hægt er að nálgast hjálparvideo inná heimasíðunni www.thelmasteimann.com til að sjá hvaða aðferðir eru notaðar hverju sinni. Myndefnið liggur inn á heimasíðunni undir KARAVEST.
Ships within 48 hours · Estimated delivery Jul 18 - Jul 23
US$40
Get nowSign up to your membership to get coupons up to
15%
Get nowOpportunity to enjoy order discount up to 15% off
Top-Converting Item to Boost Your Average Order